HVERFISRÁÐ GRAFARVOGS
Hverfisráð Grafarvogs hefur aðsetur á þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Miðgarði, Gylfaflöt 5.
[su_button url=“http://reykjavik.is/radognefndir/hverfisrad-grafarvogs“ target=“blank“ style=“3d“ background=“#1065bd“ radius=“0″]Nánar um hverfisráð[/su_button]
Aðalmenn
Bergvin Oddsson
Gísli Rafn Guðmundsson
Guðbrandur Guðmundsson
Herdís Anna Þorvaldsdóttir
Elísabet Gísladóttir
Varamenn
Dofri Hermannsson
Sævar Jökull Björnsson
Ragnar Karl Jóhannsson
Ólafur Kr. Guðmundsson
Ingibjörg Óðinsdóttir
Áheyrnarfulltrúi
Trausti Harðarson
Áheyrnarfulltrúi til vara
Jón Sigurðsson
Um hverfisráð
Hverfisráð eru starfandi í öllum tíu hverfum borgarinnar. Hlutverk þeirra er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þeirra. Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgarstofnana í einstökum hverfum.
Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og eiga að stuðla að eflingu félagsauðs í hverfum.
Þá ber hverfisráðunum að stuðla að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfunum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa.
Hverfisráðin eru skipuð fimm fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna.
Borgarstjórn kaus í hverfisráð Grafarvogs 16. júní 2014. Formaður var kjörinn án atkvæðagreiðslu Bergvin Oddsson.
Fundargerðir hverfisráða má nálgast hér.