Vel hefur gengið að hirða tunnur við heimili í Reykjavík og sorphirða er á áætlun. Því munu starfsmenn sorphirðu í Reykjavík ekki vera við vinnu á morgun, aðfangadag. Sorphirða hefst aftur eftir jól sunnudaginn 27. desember.
Magn úrgangs eykst verulega í desember og árið í ár er enginn undantekning. Íbúar eru hvattir til að flokka það sem til fellur eins og mögulegt er. Einnig að setja allt tilfallandi umframsorp sem ekki rúmast í gráu tunnunni í sérmerkta poka sem hægt er að kaupa hjá N1 stöðvum í Reykjavík og í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14. Pokinn er eingöngu ætlaður undir blandaðan heimilisúrgang frá heimilum í Reykjavík og skal staðsetja hann við hlið tunnunnar.
Einnig er hægt að skila úrgangi á endurvinnslustöðvar SORPU bs. sem eru sex á höfuðborgarsvæðinu. Opið verður á endurvinnslustöðvum á Þorláksmessu frá kl. 12.30 til 19.30 nema á Breiðhellu en þar opnar kl. 8.00. Endurvinnslustöðvar verða aftur opnar eftir jól kl. 12 þann 27. desember. Benda má á að ávallt er hægt að skila pappírs- og plastefnum til endurvinnslu á 57 grenndarstöðvar í Reykjavík og í bláar og grænar tunnur og dregur það úr því magni sem annars færi í gráu tunnuna.
Skila má öllum gjafaumbúðum úr pappír á grenndar- og endurvinnslustöðvar og í bláu tunnuna, hvort sem þær eru litaðar eða ekki. Umbúðir úr plasti er hægt að setja í grænu tunnuna undir plast sem hefur staðið Reykvíkingum til boða frá því í október og á grenndar- og endurvinnslustöðvar.