Samkvæmt heimildum Vísis verður Ólafur Páll Snorrason kynntur sem spilandi aðstoðarþjálfari Fjölnis í Pepsí-deildinni næsta sumar. Knattspyrnudeild Fjölnis hefur boðað til fréttamanafundar í dag þar sem nýr spilandi aðstoðarþjálfari verður kynntur til sögunnar.
Ólafur Páll hefur leikið stórt hlutverk með FH-ingum síðustu ár en hann er gamall Fjölnismaður og lék síðast með liðinu sumarið 2008.
Uppfært kl. 17: Ólafur Páll Snorrason hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fjölni á blaðamannafundi sem efnt var til.