Önnur viðureign Fjölnis og ÍA í einvíginu um sæti í Dominosdeildinni í körfuknattleik karla verður háð á Akranesi í kvöld og hefst leikurinn klukkan 19.15. Fjölnir hóf einvígið vel og vann fyrstu rimmu liðanna í Dalhúsum í fyrrakvöld.
Það er ástæða fyrir stuðningsmenn Fjölnis að styðja vel við bakið á sínum mönnum og fjölmenna á leikinn á Skaganum í kvöld. Góð stemning er í þeirra röðum en þeir ætla að hittast í Dalhúsum kl. 17 í dag og gæða sér á gómsætum hamborgurum og keyra svo saman á Akranes.