Engum ætti að leiðast í vetrarfríinu sem verður í grunnskólum borgarinnar dagana 18.-21. febrúar. Frístundamiðstöðvar og menningarstofnanir bjóða upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna án endurgjalds og frítt verður í sundlaugar á tilteknum tímum.
Meðal þess sem verður í boði hjá frístundamiðstöðvunum eru föndursmiðjur, ratleikir, útieldun og dans. Dagskrá verður í öllum hverfum, s.s. á Klambratúni og Kjarvalsstöðum, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og í Gufunesbæ. Þá bjóða menningarstofnanir borgarinnar upp á leiki, smiðjur og leiðsögn fyrir alla fjölskylduna og svo má skemmta sér í sundlaugafjöri í öllum hverfum. Fullorðnir í fylgd með börnum fá frítt inn söfn borgarinnar.
Dagskrá frístundamiðstöðva og menningarstofnana borgarinnar
Ársel – Árbær, Grafarholt og Úlfarsárdalur
Þriðjud. 21.feb. kl. 13-16:00 – Árseli Rofabæ 30
Spiladag fjölskyldunnar Í Töfraseli.
Opið hús í félagsmiðstöðinni Tíunni fyrir alla fjölskylduna með leik, dansi og fl.
Kl. 14–16:00 – Holtið Norðlingabraut 12
Gestum og gangandi býðst að koma og gera sér glaðan dag, fara í karaoke, just-dans, borðtennis og fl.
Kl. 13-15:00 – Fjósið Gvendargeisla 168
Spiladagur fjölskyldunnar
Gufunesbær – Grafarvogur
Þriðjud. 21. feb. kl. 10-12:00
Föndursmiðja í Hlöðunni
Míní-keila
Skítóklúbbur
Kl. 11-14:00
Klifur í turninum
Útieldun, tálgað í lundinum, kolamálun og ratleikur
Sundlaug Grafarvogs kl. 14-16:00
Sundlaugarfjör – „Wipe-out“ brautin vígð. Frítt inn!
Miðberg – Breiðholt
Þriðjud. 21. feb.
Kl. 13:30 -16:00 Miðberg
Mission impossible leikur, útieldun, bingó. Vöfflur, kaffi og kakó.
Kl.13:30 – 16:00 Hólmasel
Opið hús með borðtennis, dansi, slimgerð, andlitsmálningu bingó og fl.
Vöfflur, kaffi og kakó.
Sundlaug Breiðholts
Frítt í sund frá kl. 13.30 – 15.00. Kaffi, kakó og kleinur. Tónlist og fjör í innilauginni
Tjörnin – Hlíðar, Miðborg og Vesturbær
Þriðjud. 21. feb.
Fjölskyldudagskrá Miðborg og Hlíðar kl. 13-15:00
Fjölskyldukubb á Klambratúni og listasmiðjur á Kjarvalsstöðum
Kaffi, djús og kleinur.
Draumafangarasmiðja
Skartgripagerð
Grímugerð
Kl. 15-17:00 – Vesturbær
Mission Impossible ratleikur frá frístundamiðstöðinni Tjörninni
Spilaleiðsögn og Loom smiðja í Tjarnarsalnum, kaffi, kakó og kleinur.
Kl. 13-17:00
Sundlaugafjör í Vesturbæjarlaug og Sundhöllinni. Frítt inn!
Kringlumýri – Laugardalur, Háaleiti og Bústaðir
Þriðjud. 21. feb.
Kl. 13 -15:00 Sólheimabóksafnið
Sögugerð í spjaldtölvum á Puppet Pal s
Kl. 13-15:00 Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Söngatriði frá krökkunum í hverfinu
Hildur tekur lagið
Húlladúlla – hópurinn sýnir listir sínar með húllahringi og kennir gestum ýmsar listir.
Skylmingar.
Pylsur og andlitsmálning.
Frítt inn!
Vetrarfríshátíð Guluhlíðar og Öskju
Kl. 13-15:00
Þythokkí, furðufatatískusýningu, listasmiðja, tie-dye, andlitsmálning, stórar perlur og. fl.
Menning fyrir alla fjölskylduna
Í Borgarbókasafninu verður hægt að fara í ratleiki, spila á spil, klæða sig í búninga, spreyta sig á getraunum eða bara slaka á og lesa. Þá verður sérstök dagskrá á öllum söfnum á Heimsdegi barna laugardaginn 18. febrúar. Kynntu þér dagskrána á einstökum söfnum á borgarbokasafn.is
Á Listasafni Reykjavíkur verður ýmislegt í boði eins og hljóðklippismiðja undir stjórn Curver Thoroddsens í Hafnarhúsinu og listsmiðja í Ásmundarsafni undir stjórn Söru Riel myndlistarkonu. Kynntu þér dagskrána á listasafnreykjavikur.is
Á Árbæjarsafni verður opið í vetrarfríinu frá kl. 13-16:00. Þar má skoða leikfangasýninguna Komdu að leika og sýninguna Neyzluna.
Á Landnámssýninguni í Aðalstræti verður hægt að kynna sér miðaldaheima, fara í rúnaspil og leika með leikföng frá Víkingatímanum.
Á Sjóminjasafninu verður boðið upp á flugdrekasmiðju og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Kynntu þér dagskrána á borgarsogusafn.is