Daninn Marcus Solberg Mathiasen, sóknarmaðurinn knái, hefur framlengt samningi sínum við Fjölni um eitt ár. Marcus tók þátt í öllum leikjum Fjölnis í Pepsídeildinni í sumar og skoraði í þeim alls fimm mörk.
Marcus er 21 árs að aldri og á að baki 30 leiki með yngri landsliðum Dana.