Það hefur ekki farið framhjá ökumönnum að götur borgarinnar eru víðast hvar illar farnar eftir veturinn og mikil vinna við lagfæringar bíða á næstu vikum. Viðgerðaflokkar hafa verið við störf síðustu daga í Grafarvoginum og verða það á næstunni.
Malbikunarmenn voru að fylla í holur í Langarima í dag og eins á Borgarvegi þegar tíðindarmenn grafarvogsbúa.is voru þar á ferð.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og draga úr umferðarhraða er þeir eiga leið hjá viðgerðarflokkum sem nýta að nú er hagstætt veður til malbiksviðgerða.