Söngelskir karlmenn í Grafarvogshverfi í Reykjavík geta tekið gleði sína því stofnaður hefur verið Karlakór Grafarvogs. Stofnandi kórsins er Íris Erlingsdóttir kórstjóri og söngkennari við Söngskólann í Reykjavík.
Söngelskir karlmenn í Grafarvogshverfi í Reykjavík geta tekið gleði sína því stofnaður hefur verið Karlakór Grafarvogs. Stofnandi kórsins er Íris Erlingsdóttir kórstjóri og söngkennari við Söngskólann í Reykjavík. Kórinn mun vera í samstarfi við Grafarvogskirkju og fara æfingar fram í kirkjunni.„Mér fannst bara upplagt í tuttugu þúsund manna hverfi að setja á laggirnar karlakór. Það er enginn kór kenndur við Grafarvog,“ segir Íris. Hún veit ekki til þess að það hafi áður verið starfandi hverfiskarlakór í Reykjavík.Íris finnur fyrir áhuga á kórnum. „Þeir bregðast vel við. Ég ætla að reyna að fá lágmark tuttugu í kórinn en ég get alveg byrjað með átta. Það eru nokkrir þegar búnir að skrá sig og ég vona að viðbrögðin verði góð en ég verð ekki með inntökupróf til að byrja með.“Spurð hvort þetta verði karlakór með hefbundnu sniði segir Íris það vera. „Ég held að við reynum að vera hefðbundinn karlakór með léttu sniði.“
Ekki er skilyrði fyrir þátttöku að menn séu búsettir í Grafarvogi. Allir áhugasamir söngmenn eru boðnir velkomnir í kórinn. Kynningarfundur um starfsemi hans verður haldinn í Grafarvogskirkju á mánudagskvöldið kl. 20 og eru allir áhugasamir velkomnir. Í framhaldi af fundinum ætlar Íris að vera með létta æfingu þar sem hún kynnir verkefni vetrarins.
Íris segist finna fyrir meiri áhuga á kórstarfi nú en var fyrir nokkrum árum. „Fólk sækir meira í það nú að vera saman og gefa sér tíma í þetta. Það er hvíld frá öllu öðru amstri að syngja og gleyma sér í smástund. Þetta er góð sáluhjálp.“