Vetrarhátíð verður sett fimmtudaginn 6. febrúar kl. 19:30 í safni Einars Jónssonar. Hátíðin verður öll hin glæsilegasta og mun fjöldi listamanna taka þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi á hátíðinni að þessu sinni og verða ljósalistaverk staðsett á fjölsóttum stöðum um alla borg auk þess sem byggingar og almenningsrými verða lýst upp með fjölbreyttum hætti. Verkin verða hluti af ljósagöngu sem íbúar og gestir borgarinnar eru hvattir til þess að ganga og njóta.
Strax að lokinni setningu Vetrarhátíðar verða haldnir magnaðir tónleikar, Denver Calling, í Iðnó og hefjast þeir klukkan 21. Tónleikarnir eru samstarfstónleikar tónlistarmanna frá Reykjavík og Denver í Colorado í Bandaríkjunum. Á tónleikunum stilla tónlistarmennirnir strengi sína saman og flytja tónlist hvors annars með skemmtilegri útkomu. Íslensku tónlistarmennirnir sem koma fram eru hin þjóðþekktu Högni Egilsson (Hjaltalín og Gus Gus), Lay Low og Snorri Helgason. Frá Denver koma þau Tyler Ludwick (Princess Music), Esmé Patterson (Paper Bird) og Jesse Elliott (Ark Life)
Samstarf tónlistarmannanna hófst á tónleikunum Reykjavík Calling sem haldnir voru í Denver í september 2013 undir sömu formerkjum. Tónleikarnir heppnuðust mjög vel og fengu frábærar undirtektir og komust færri að en vildu.
Tónlistarunnendur ættu ekki að láta þessa tónleika fram hjá sér fara því von er á einstöku tónlistarkvöldi. Ókeypis er inn á tónleikana á meðan húsrúm leyfir.
Á Vetrarhátíð lýsum við upp mesta skammdegið í febrúar með skemmtilegum viðburðum og uppákomum, íbúum og gestum borgarinnar að kostnaðarlausu. Alls verða á hátíðinni 200 viðburðir af ýmsu tagi, stórir sem smáir, en hún stendur yfir í tíu daga.
Nánari upplýsingar um dagskrá Vetrarhátíðar má nálgast á heimasíðu: www.vetrarhatid.is