Lokahóf yngri flokka í knattspyrnu 8.- 3. flokkur verður haldið í Dalhúsum sunnudaginn 24. september kl. 12:30 – 13:30. Að lokahófi loknu er svo leikur hjá mfl. karla þar sem Fjölnir tekur á móti KR kl:14:00 og ætlum við að fjölmenna á leikinn.
Gengið er inn um sundlaugarinnganginn og þaðan inn í íþróttasalinn.
Ekki verða veitt verðlaun en allir flokkar verða kallaðir upp og farið verður yfir tímabilið og félagið þakkar öllum fyrir ánægjulegt samstarf á tímabilinu.
Biðjum alla iðkendur og forráðamenn að mæta í Fjölnispeysum.
Nánari dagskrá auglýst þegar nær dregur.
Síðan verða flokkarnir kallaðir upp og farið verður yfir tímabilið og fara svo í liðsmyndatöku.
Allir að mæta glaðir og kátir og síðan styðjum við okkar stráka til sigurs !
Áfram Fjölnir.