Fyrir helgina gengu tvær öflugar handboltakonur til Fjölnis sem leika munu með liðinu á næsta tímabili í Olís-deildinni. Um er að ræða þær Díönu Kristínu Sigmarsdóttur sem lék síðast með Fylki og Fanneyju Ösp Finnsdóttur sem kemur einnig úr röðum Fylkis
Það liggur ljóst fyrir að með komu þessara leikmanna má sjá mikla innspýtingu í þetta unga spræka Fjölnislið og verður gaman að sjá þessar tvær öflugar í gulu og bláu næsta vetur.
Við bjóðum stelpurnar hjartanlega velkomnar í félagið og hlökkum til að fylgjast með þeim ásamt hinum snillingunum okkar á vellinum í Olísdeildinni næsta vetur.