Fjölnir samdi í gærkvöldi við Króatann Ivica Dzolan um að leika með liðinu í Pepsídeildinni í knattspyrnu í sumar. Dzolan hefur æft með Fjölni sem nú er í æfingaferð á Spáni. Dzolan er 29 ára miðvörður og lék síðast með NK Osijek í heimalandi sínu.
Fjölnir er að leita að liðsstyrk fyrir átökin í sumar en liðið stóð sig sérlega vel á síðasta tímabili.