Gærdagurinn var annasamur hjá Körfuknattleiksdeild Fjölnis en kvennalið félagsins gekk frá samningi við níu leikmenn um að leika með liðinu á næsta tímabili. Eva María Emilsdóttir snýr aftur heim í Fjölni og þá hafa Berglind Karen Ingvarsdóttir og Margrét Ósk Einarsdóttir ákveðið að ganga til liðs við Fjölni.
Mikil ánægja ríkir með þennan liðsstyrk og bíða allir spenntir eftir að nýtt körfuboltatímabil hefjist.
Þá framlengdi körfuknattleiksdeildin samninga við Kristínu Maríu Matthísadóttur, Margréti Eiríksdóttur, Aníku Lindu Hjálmarsdóttur, Fanneyju Ragnarsdóttur, Snæfríði Birtu Eiríksdóttur og Friðmeyju Rut Ingadóttur.