Fimmti erlendi leikmaðurinn hefur samið við Fjölni um að leika með liðinu í Pepsídeildinni í sumar. Hér er um ræða Króata að nafni Mario Tadejevic, sem leikur stöðu vinstri bakvarðar, en hann var með lðinu í æfingaferð á Spáni um páskana.
Mario er 27 ára sóknarsinnaður bakvörður sem hefur spilað um 100 úrvalsdeildarleiki í heimalandi sínu Króatíu, Bosníu og í Ungverjalandi.
Hann á jafnframt nokkra leiki með með yngri landsliðum Króatíu.