Jón Trausti Harðarson 17 ára skákmaður sem teflir með skáksveit Fjölnis á Íslandmóti skákfélaga tekur um þessar mundir þátt í fjölmennu alþjóðlegu skákmóti í Andorra. Byrjunin lofar góðu á mótinu því að eftir fjórar umferðir af níu er hann taplaus með 3 vinninga af 4 mögulegum.
Jón Trausti er í 20. sæti mótsins en skv. styrkleikalista er hann í 80. sæti af um 150 skákmönnum. Með áframhaldandi velgengni mun Jón Trausti tefla við stigahærri skákmenn í hverri umferð sem líður á mótinu.