Á Laugardaginn kemur, 14. mars, milli kl. 11 og 12:30 verður John Barnes fyrrum leikmaður Liverpool og enska landsliðsins í SportBitanum hjá Fjölnismönnum í Egilshöll þar sem hann mun árita treyjur, myndir og hvaðeina sem fólk vill að hann kroti á.
Fólk er hvatt til að mæta tímanlega því búast má við því að margt verði um manninn eins og venja er þegar svona vinsælir fyrrum leikmenn félagsins mæta til landsins. Fólki er bent á að halda fjölda hluta sem Barnes áritar á í lágmarki svo að sem flestir komist að.
Reiknað er með að þessi fyrrum stjarna Liverpool kíki á æfingu hjá yngri flokkum Fjölnis.