Fjölnir gerði jafntefli við Þrótt í 1. deild karla í handknattleik í Dalhúsum um helgina. Lokatölur leiksins urðu, 23-23, eftir að Fjölnir leiddi í hálfleik, 14-12. Leikurinn var lengstum í járnum og lokakafli leikins var æsispennandi. Eftir leikinn er Fjölnir í níunda sæti deildarinnar með 8 stig af ellefu liðum í deildinni.
Mörk Fjölnis: Eyþór Vestmann Hilmarsson 7, Kristján Örn Kristjánsson 4, Sindri Gunnarsson 3, Bjarni Ólafsson 2, Breki Dagsson 2, Sigurður Guðjónsson 2, Einar Örn Hilmarsson 2, Bergur Snorrason 1.