Arkitektar: Vilhjálmur Hjálmarsson og Guðmundur Þór Pálsson.
Byggingarár: 1998.
Saga byggingarinnar
Skóflustungan var tekin 13. desember 1996 og var fyrsti áfangi laugarinnar opnaður 3. maí 1998. Grafarvogslaug hefur verið að byggjast smátt og smátt frá opnunardegi. Lokið var við innilaug og nuddpott haustið 1998 og eimbað vorið 1999. Leiklaug og rennibraut voru opnaðar 25. apríl 2002.
Stærð byggingar: | 3.097 m2 | Heildarstærð vantsflata er um: | 670 m2 |
Stærð lóðar: | 65.012 m2 | Fjöldi bílastæða: | 53 |
Lóðarmat: | 51.328.000 | Fasteignamat: | 276.138.000 |
Brunabótamat: | 351.335.000 | Rúmmál: | 10.690 m3 |
Aðallaug
Lengd: 25 m, breidd: 12,5 m | Mesta dýpi: 1,80 m | Minnsta dýpi: 1,10 m | Rennsli á klst: 140 m3 |
Flatarmál: 312,52 m2 | Rúmmál: 439 m3 | Hitastig: 29°C | Fjöldi brauta: 5 |
Innilaug
Lengd: 12,5 m, breidd: 8,5 m | Mesta dýpi: 0,90 m | Minnsta dýpi: 0,70 m | Rennsli á klst: 44 m3 |
Flatarmál: 108 m2 | Rúmmál: 88 m3 | Hitastig: 32 – 33°C | Fjöldi brauta: 3 |
Leiklaug – Úti
Lengd: 12,5 m, breidd: 7 – 11 m | Mesta dýpi: 1,00 m | Minnsta dýpi: 0,90 m | Rennsli á klst: 44 m3 |
Flatarmál: 113 m2 | Rúmmál: 96 m3 | Hitastig: 32°C | Fjöldi brauta: 3 |
Vaðlaug
Lengd: 10 m, radíus: 5 m | Mesta dýpi: 0,3 m | Minnsta dýpi: 0,30 m | Rennsli á klst: 18 m3 |
Flatarmál: 30 m2 | Rúmmál: 9 m3 | Hitastig: 37°C |
Heitir pottar
Nuddpottur | Hitastig: 37°C | 17 m2 – 13,6 m3 |
Volga | Hitastig: 41°C | 10 m2 – 7 m3 |
Víti | Hitastig: 43°C | 10 m2 – 7 m3 |
Hreinsun vatnsins í sundlauginni fer fram í gegnum sandsíur, allt að 48 sinnum á sólarhring í pottunum. Sjálfvirkar klórstöðvar sjá um að halda gæðum vatnsins samkvæmt stöðlum í reglugerð Hollustuverndar.
Eimbað og sauna
Sameiginlegt fyrir karla og konur á útisvæði. Hitastig 48 – 50°C.
Vatnið
Allt vatn í sturtum, laugum og pottum er upphitað kalt vatn. Sýrustigi vatnsins í laugum er stýrt með notkun koldíoxíðs og er því með um 7,7 pH, sem gerir það mögulegt að takmarka notkun klórs.
Leiktæki
Vatnsrennibraut: hæð brautar. 6,2 m lengd brautar 51 m.
Önnur leiktæki: lítil rennibraut 1,2 m ásamt ýmiskonar flotleiktækjum.
Veitingar
Í Grafarvogslaug er veitingasala þar sem hægt er að kaupa ýmsar léttar veitingar, snyrtivörur og fleira.
Forstöðumenn frá upphafi:
Hafliði Halldórsson 1997 -.
Rekstrarstjórar:
Jens Á Jónsson 1998 – 2004;
Guðmundur Ísidórsson 2004 -.