Innritun hjá fimleikadeild Fjölnis hefur staðið fyrir haustönn hefur staðið yfir undanfarna daga og stendur til 3. júlí. Til þess að staðfesta pláss fyrir næstu önn þarf að skrá barnið á lista inn í skráningakerfið okkar https://fjolnir.felog.is/. Vinsamlegast veljið hóp sem heitir „Staðfesting á skráningu – Fimleikar“. Ef umsókn er ekki skilað inn fyrir 3. júlí þá verður barnið tekið af iðkendalistanum og öðrum boðið plássið. Athugið að þessi forskráning á einungis við þá iðkendur sem voru hjá okkur á vorönn 2014.
Við forskráningu þarf að greiða 10.000 kr. staðfestingargjald til þess að tryggja pláss á haustönn. Þetta kemur til með að auðvelda skipulag vetrarstarfsins og veita þeim börnum sem eru á biðlista pláss með betri fyrirvara en síðastliðin ár. Athugið að staðfestingargjaldið gengur upp í æfingagjald haustannarinnar. Staðfestingargjaldið er óafturkræft
Gert er ráð fyrir því að æfingar fimleikadeildar hefjist miðvikudaginn 3.september skv. stundaskrá.