Eins og undanfarin ár eiga íbúar þess kost að sækja sér salt og sand á hverfastöðvar og verkbækistöðvar Reykjavíkurborgar til að bæta öryggi á gönguleiðum í nágrenni sínu og heimkeyrslum.
Salt og sandur er aðgengilegur fyrir íbúa á eftirfarandi stöðum:
- Þjónustumiðstöðinni við Stórhöfða (keyrt inn frá Svarthöfða)
- Hverfastöðinni við Njarðargötu,
- Hverfastöðinni í Jafnaseli,
- Hverfastöðinni á Kjalarnesi,
- Verkbækistöðinni við Árbæjarblett og
- Verkbækistöðinni á Klambratúni við Flókagötu.
Stöðvarnar eru opnar mánudaga til fimmtudaga kl. 7:30 – 17:00 og föstudaga kl. 7:30 -15:25.
Íbúar eru hvattir til að hafa með sér ílát en einnig er mögulegt að fá poka á staðnum. Skóflur eru við sand- og salthrúgurnar.
Nánari upplýsingar um snjóhreinsun og hálkuvarnir