Reykjavíkurborg efnir til hreinsunardaga 2.–7. maí og hefur opnað skráningarsíðu þar sem hægt er að velja úr opnum leiksvæðum og nágrenni. Fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að taka þátt. #hreinsumsaman.
Reykjavíkurborg tekur þátt í evrópskri hreinsunarviku með því að hvetja fólk og fyrirtæki til að hreinsa saman 2.-7. maí og borgin efnir til sérstaks hreinsunardags laugardaginn 7. maí.
Borgarbúar geta valið sér opið leiksvæði og nágrenni á skráningarsíðu og fyrirtæki geta skráð sig til leiks og fengið viðurkenningarskjal.
Reykjavíkurborg vinnur nú að því hörðum höndum að hreinsa og fegra borgina og býður nú öllum að taka þátt. Kjörið er að taka saman höndum og velja sér svæði til að fegra.
Öll opin leiksvæði hafa verið skráð inn á skráningarsíðuna og auðvelt að velja sér stað. Þeir sem vilja geta fengið ruslapoka á hverfastöðvum Reykjavíkurborgar á Njarðargötu, við Jafnasel og Stórhöfða á laugardeginum eða dagana á undan.