Fimmti leikur Fjölnis og Skallagríms í úrslitaeinvíginu um sæti í Dominosdeildinni í körfuknattleik verður háður í íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum í kvöld og hefst viðureignin klukkan 19.15. Staðan í einvíginu er, 2-2, og er því um hreinan úrslitaleik að ræða í kvöld. Það er því mikið í húfi í þessum leik enda sjálft sætið í deild á meðal þeirra bestu.
Stuðningurinn í síðustu leikjum hefur verið stórkostlegur en í kvöld ætla stuðningsmenn sér mikið, fylla Dalhúsin af áhorfendum og hjálpa þannig liðinu af fremsta megni að tryggja því sæti í efstu deild. Það er því afar brýnt að allt Fjölnisfólk og Grafarvogsbúar fjölmenni í Dalhúsin í kvöld og styðji strákana til sigurs.