Hlauparar úr Fjölni gerðu það gott í Stjörnuhlaupinu sem háð var í dag í Garðabæ. Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Ingvar Hjartarson urðu bæði Íslandsmeistarar í 10 km götuhlaupi en samkvæmt mótaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands, FRÍ, er Stjörnuhlaupið jafnframt Íslandsmótið í 10 km götuhlaupi.
Ingvar hljóp vegalengdina á 33,44 mínútum en Arndís Ýr sömu vegalengd á 38,07 mínútum.