
Kæra foreldri/forráðamaður
Heilsugæslan er í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Rannsóknir & greiningu
um:
Lifecourse rannsóknina sem kannar áhrif félags- og líffræðilegra þátta á hegðun
og líðan unglinga
Hér að neðan er stutt lýsing á helstu þáttum rannsóknarinnar en í viðhengi eru
ítarlegri upplýsingar.
Þetta bréf er sent til foreldra sem þegar hafa samþykkt þátttöku í rannsókninni
á fyrri stigum. Nú óskum við eftir samþykki þínu fyrir þátttöku barns þíns í
síðasta hluta rannsóknarinnar.
Við biðjum þig að kynna þér meðfylgjandi efni vel. Kjósir þú að veita samþykki,
gefur þú samþykki þitt með því að opna hlekk efst í kynningarbæklingnum merktur
,,Skrá þátttöku“ og skrá þar nafn og kennitölu barns þíns. Einnig má
smella á þennan hlekk: https://www.surveymonkey.com/r/lifecourse2019
eða svara þessum pósti með upplýsingum um nafn og kennitölu barnsins.
Stutt lýsing á LIFECOURSE rannsókninni
Markmið rannsóknarinnar er að bæta líf barna og ungmenna samhliða því að auka
skilning okkar á því hvernig umhverfi og líkamlegir þættir hafa áhrif á hegðun,
heilsu og líðan barnanna okkar, m.a kvíða og þunglyndi á unglingsárum. Sjá
nánar í viðhengi.
Upplýsingar um framkvæmd
Lífsýnum með stroku úr kinn verður safnað í samstarfi við skólahjúkrunarfræðing
og niðurstöður skoðaðar í tengslum við upplýsingar úr gagnagrunnum sem m.a.
tengjast heilsu, félags- og menntaþáttum unglinganna. Framkvæmd rannsóknarinnar
er í höndum vísindafólks við Háskólann í Reykjavík og Rannsóknir &
greiningu. Þátttakendum er frjálst að hætta þátttöku hvenær sem er án ástæðu,
skýringa eða afleiðinga. Sjá nánar í viðhengi.
Ósk um samþykki vegna þátttöku
Samþykkisyfirlýsing er send foreldrum og forráðamönnum allra væntanlegra
þátttakenda. Hægt er að samþykkja rannsóknina á eftirfarandi vegu:
1. Með því að svara þessum tölvupósti eða smella á hlekkinn að neðan og skrá
þátttöku
eða
2. Með því að fylla út og senda meðfylgjandi eyðublað til Háskólans í Reykjavík
merkt LIFECOURSE rannsókninni eða skólahjúkrunarfræðings í skóla barnsins.
Rafrænt samþykkisform má finna hér: https://www.surveymonkey.com/r/lifecourse2019
Sigríður Ósk Einarsdóttir
Rimaskóli
sent úr Mentor.is


