Nýtt námskeið í fullorðinsfimleikunum hófst í gær og stendur í 12 vikur. Námskeiðið fer fram í aðstöðu fimleikadeildarinnar í Egilshöllinni og er fyrir 18. ára og eldri. Æfingar verða á mánudögum kl:20.00-21:30 og miðvikudögum kl.20:30-22:00. 12 vikna námskeið kostar 19.500 kr.
Eins og áður verður lögð áhersla á góðar þrek- og teygjuæfingar og svo þær fimleikaæfingar sem henta getu hvers og eins. Reynsla af fimleikum er ekki skilyrði fyrir þátttöku heldur reynum við að koma til móts við þarfir hvers og eins. Fimleikar eru frábær alhliða hreyfing og henta vel fyrir þá sem vilja styrkja sig og liðka og hafa gaman af í leiðinni. Þjálfari FFF er Tara Silvana Matthíasdóttir.
Skráning fer fram í gegnum skráningarkerfi félagsins: https://fjolnir.felog.is/ en opið er fyrir skráningu núna.