Fjölnir heldur sínu striki á toppi 1. deildar karla í körfuknattleik. Fjölnir gerði góða ferð til Hveragerðis þegar liðið lagði heimamenn í Hamri, 81-91. Þetta var níundi sigurinn í tíu fyrstu leikjum liðsins. Þór frá Akureyri vann sinn leik einnig um helgina en þessi tvö lið eru bæði með 18 stig.
Gangur leiksins:: 12:7, 12:11, 19:20, 21:24, 23:30, 25:35, 31:40, 42:45, 47:51, 47:60, 53:68, 57:75, 64:79, 74:81, 79:84, 81:91.
Fjölnir: Collin Anthony Pryor 26/19 fráköst, Garðar Sveinbjörnsson 18, Róbert Sigurðsson 18/5 fráköst/7 stoðsendingar, Bergþór Ægir Ríkharðsson 17/8 fráköst, Árni Elmar Hrafnsson 5, Sindri Már Kárason 4, Egill Egilsson 3/5 fráköst.
Fráköst: 38 í vörn, 5 í sókn.