Fyrsti heimaleikur Fjölnis í Pepsídeildinni í knattspyrnu verður í kvöld þegar liðið tekur á móti Breiðablik á Extravellinum og hefst leikur liðanna klukkan 19.15. Fjölnir sótti Eyjamenn heim í fyrstu umferð mótsins og lyktir leiksins urðu markalaust jafntefli.
Blikar töpuðu hins vegar sínum fyrsta leik fyrir KA á heimavelli sínum í Kópavogi.
Fjölnis áttu góðu gengi að fagna á síðasta tímabili og verður spennandi að sjá hvort liðið fylgir þeim árangri eftir.
Það stefnir í hörkuleik í Grafarvoginum í kvöld og eru íbúar hverfisins hvattir til að fjölmenna og hvetja liðið sitt áfram í baráttunni.