Fjölnir hafnaði í þriðja sæti í 1. deild karla í handknattleik og hefur aldrei náð betri árangri í deildinni. Fjölnir vann í gærkvöldi KR, 38:22, í Dalhúsum. Fjölnir leikur við Selfoss í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Olísdeildinni. Eftir leikinn tóku leikmenn Fjölnis á móti bronsverðlaunum.
Mörk Fjölnis í leiknum gegn KR í gærkvöldi: Breki Dagsson 7, Bjarki Lárusson 7, Arnar Ingi Guðmundsson 5, Brynjar Loftsson 5, Kristján Örn Kristjánsson 4, Bjarni Ólafsson 3, Sveinn Þorgeirsson 2, Sigurður Guðjónsson 2, Unnar Arnarsson 2, Björgvin Páll Rúnarsson 1.
Fyrsti leikur Fjölnis gegn Selfoss í umspilinu verður í Dalhúsum 10. apríl.