Fjölnir tekur á móti Þrótti á fimmtudaginn 15. september kl. 17:00 á heimavellinum okkar fagra í Grafarvogi og við viljum bjóða ykkur öllum frítt á leikinn.
Fjölnir er að spila sína allra stærstu leiki þessa dagana og eru í mikilli baráttu um Evrópusæti.
Í tilefni þess er frítt inn fyrir alla á þennan leik.
Við hvetjum ykkur til þess að mæta á völlinn með alla fjölskylduna í gulu, hafa gaman og styðja Fjölni!
Á vellinum verður sjoppan opin, seldar gómsætar pizzur, grillaðir hamborgarar og því er kjörið að afgreiða kvöldmatinn á vellinum.
Endilega addið Fjölni á: Twitter: Fjolnir_FC
Snapchat: umf.fjolnir
#ÁframFjölnir