Fjölnismenn riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Breiðablik í Grafarvoginum í kvöldi. Lokatölur urðu, 0-3, fyrir Breiðablik. Fjölnismenn höfðu möguleika með sigri að komast í efsta sætið, það gekk ekki eftir, og var liðið langt frá sínu besta í þessum leik. Með sigrinum féll Fjölnir niður um eitt sæti og hefur 19 stig í þriðja sætinu. FH er efst með 22 stig.
Næsti leikur Fjölnis verður á heimavelli gegn Val 24. júlí.