Fjölnir lagði Íslandsmeistara KR að velli þegar liðin mættust í A-riðli Reykjavíkurmótsins í Egilshöll í kvöld, 1-0. Markalaust var í hálfleik þó að KR væri meira með boltann. Fengu leikmenn liðsins nokkur góð færi en tókst ekki að nýta þau. Þetta kom fram á fotbolti.net Fjölnismenn komust síðan yfir um miðjan síðari hálfleik þegar Þórir Guðjónsson skoraði með glæsilegu skoti við vítateigsendann. Hann fékk langa sendingu og setti knöttinn í boga yfir Huga Jóhannesson sem stóð í marki KR í leiknum. Hrannar Einarsson fékk gott færi til að jafna metin fyrir KR eftir markið en hitti ekki rammann.
Fjölnir vann því sinn fyrsta leik á Reykjavíkurmótinu og hefur þrjú stig líkt og KR og Fram.