Meistaraflokkslið Fjölnis í knattspyrnu karla tryggði sér sæti í undanúrslitum á Reykjavíkurmótinu í gær þegar liðið vann stórsigur á Þrótti í Egilshöllinni 4-0.
Ægir Jarl Jónasson skoraði tvö mörk fyrir Fjölni í leiknum og Þórir Guðjónsson og Birnir Snær Ingason gerðu sitthvort markið.
Fjölnir hefur verið að leika vel á mótinu og vann alla leikina í sínum riðli.