Fjölnir tryggði sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu með því að leggja Fylki af velli, 2-1, í Egilshöllinni. Það var Aron Sigurðarson sem kom Fjölni yfir í leiknum úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Gunnar Má Guðmundssyni.
Fylkir komst smám saman meira inn í leikinn og jafnaði metin tíu mínútum fyrir leikslok. Fjölnismenn voru ekki af baki dottnir, efldust til muna og tókst að knýja fram sigur með marki frá Birni Ingasyni skömmu fyrir leikslok.
Fjölnir mætir KR í undanúrslitum í Egilshöllinni n.k. fimmtudagskvöld.