Fjölnir sækir KR heim í Frostaskjólið í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu í kvöld og hefst viðureign liðanna klukkan 20. Eins og allir vita fór Fjölnir mjög vel af stað á tímabilinu í Pepsí-deildinni en hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum. Víst má telja að Fjölnismenn mæti tvíefldir til leiks í vesturbæinn í kvöld enda sjálft sætið í 8-liða úrslitum bikarsins í boði. Þarna er á ferð áhugaverður leikur sem gæti orðið spennandi og fjörugur.
Grafarvogsbúar hafa stutt vel við bakið á sínum í sumar og þeir munu örugglega ekki liggja á liði sínu í kvöld og fjölmenna og hvetja sitt lið til sigurs.