Fjölnismenn unnu öruggan sigur á ÍA, 67-90, í 32-liða úrslitum Maltbikarsins í körfuknattleik á Akranesi í gær. Fjölnismenn voru mun sterkari allan tímann og náðu 17 stiga forskoti í fyrri hálfleik og sáu heimamenn aldrei til sólar eftir það.
Colin Anthony var stigahæstur í liði Fjölnis, skoraði 26 stig, hirti 14 fráköst og var að auki með átta stoðsendingar. Fjölnir er því komið í 16-liða úrslit.