Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar verður haldinn hátíðlegur þann 10. maí næstkomandi. Dagurinn er nú haldinn í sjötta sinn og má með sanni segja að hann hafi öðlast sess í hugum borgarbúa enda setur hátíðin skemmtilegan blæ á borgarlífið.
Fjölbreytt skemmtidagskrá verður í boði á laugardaginn sem hefst með setningarathöfn á Skólavörðuholti. Að því loknu fer fjölmenningarskrúðganga af stað áleiðis í Ráðhús Reykjavíkur. Fjöldi fólks hefur ár hvert tekið þátt í göngunni og ræður litagleðin ríkjum, þátttakendur klæðast fallegum þjóðbúningum hinna ýmsu landa, og lúðrasveit verður í broddi fylkingar.
Þegar í Ráðhúsið kemur hefst fjölþjóðlegur markaður í Tjarnarsal þar sem gestir og gangandi geta kynnt sér menningu hinna ýmsu þjóðlanda og á boðstólum verða þjóðlegir réttir, listmunir og annar varningur. Úrval-Útsýn verður með kynningarbás og stendur fyrir ferðahappdrætti og þar eru veglegir ferðavinningar í boði.
Í Tjarnarbíó verður Sirkús Íslands, Páll Valdimar jójólistamaður, danshópurinn Swaggerific, Indverskur kathak dans. Um kvöldið verður svo sýnt leikritið Ragnarrök – The end of the world. Leikstjóri er Juan Camilo Román Estrada.
Í Iðnó verður boðið upp á listasmiðju fyrir börn þar sem hægt verður að gera Origami, pappablóm, handalistaverk og margt fleira. Þá verður farið í leiki, hoppukastali verður fyrir utan og boðið upp á andlitsmálningu. Kenndir verða litháískir dansar og gestir geta gætt sér á risa afmælisköku í tilefni 10 ára afmæli litháíska skólans. Það ættu allir að geta fundið sér atriði við hæfi !
Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka þátt í hátíðahöldunum og fagna fjölbreytileikanum !