Prestar kirkjunnar annast fermingarfræsluna og skiptast hóparnir með eftirfarandi hætti niður á prestana, veturinn 2017-2018:
- Sr. Guðrún Karls Helgudóttir og sr. Sigurður Grétar Helgason verða með Foldaskóla
- Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir verður með Kelduskóla og Rimaskóla
- Sr. Grétar Halldór Gunnarsson verður með Vættaskóla og Rimaskóla
Fermingarfræðslan er einn umfangsmesti þátturinn í starfi safnaðarins og tekur yfir flesta daga vikunnar. Því má öllum vera ljóst að fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra setja sterkan svip á vetrardagskrá kirkjunnar. Prestar kirkjunnar hvetja foreldra að leiða fjölskyldur sínar til aukinnar þátttöku í safnaðarstarfi kirkjunnar á þessum sérstaka tíma í lífi fermingarbarnsins.
Fermingarfræðsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 5. september 2017.
Hérna er hægt að sjá skráð fermingarbörn 2018
Fermingartímar 2017 – 2018
Grafarvogskirkja:
Þriðjudagar kl. 15:00 – Foldaskóli I
Þriðjudagar kl. 16:00 – Foldaskóli II
Miðvikudagar kl. 14:00 – Foldaskóli III
Miðvikudagar kl. 15:00 – Foldaskóli IV
Kirkjusel:
Þriðjudagar kl. 14:00 – Kelduskóli I og Vættaskóli I
Þriðjudagar kl. 15:00 – Kelduskóli II og Vættaskóli II
Fimmtudagar kl. 15:00 – Rimaskóli I
Fimmtudagar kl. 16:00 – Rimaskóli II
Samverur vetrarins
Fermingarfræðsla hjá nemendum í Kelduskóla Vík, Vættaskóla Engi og Rimaskóla verður í kirkjuselinu í Borgum í Spöng samkvæmt stundarskrá.
Fermingarfræðsla hjá Foldaskóla verður í kirkjunni samkvæmt stundarskrá.
Þemadagarnir verða þrjá laugardaga 20. janúar, 10. febrúar og 3. mars kl. 9:00 – 12:00.
Vetrarfrí
Fermingarferð í Vatnaskóg
Foldaskóli fer í fermingarferðalag í Vatnaskóg 15. – 16. september.
Rima-, Vætta og Kelduskóli fara í fermingarferðalag í Vatnaskóg 22. – 23. september.
Ferðirnar eru frá kl. 8:00 á föstudegi og til hádegis á laugardegi. Foreldrar þurfa því að sækja um leyfi frá skóla á föstudegi. Það er ekki skyldumæting en Vatnaskógur er góður staður til að hrista hópinn saman og blanda saman fræðslu og skemmtun.
Guðsþjónustur
Fermingarnámskeiðið samanstendur af vikulegum samverum í kirkjunni fram að áramótum, þremur þemadögum eftir áramót, ferð í Vatnaskóg og guðsþjónustum. Til þess að fermast þarf að mæta í samverurnar og í 14 guðsþjónustur yfir veturinn, sjö fyrir áramót og sjö eftir áramót. Guðsþjónustur eru alla sunnudaga í kirkjunni kl. 11:00 og í Kirkjuselinu í Borgum í Spönginni kl. 13:00. Fermingarbörn fá ekki stimpil fyrir að mæta í sunnudagaskóla þó þau séu velkomin þangað. Nokkrum sinnum yfir veturinn býðst fermingarbörnunum að taka sérstakan þátt í guðsþjónustunni (vera messuþjónar) og fá auka stimpla. Þau sem hafa áhuga á því hafa samband við þann prest er hefur umsjón með hópnum þeirra. Með þessu móti er hægt að vera fljótari að safna þessum 14. Stimplum. Hægt er að vera messuþjónn í messu er umsjónarprestur hópsins er með.
Æskulýðsfundir í kirkjunni á mánudögum kl. 20:00
Æskulýðsfundir eru í boði fyrir fermingarbörn alla mánudaga kl. 20:00. Fjölbreytt dagskrá verður í boði. Þeim sem mæta reglulega gefst kostur á að taka þátt í Landsmóti æskulýðsfélaga í október og í Febrúarmóti í Vatnaskógi. Umsjón hefur Hreinn Pálsson.
Veikindi og forföll
Ef fermingarbarn kemst ekki í tíma vegna veikinda er mikilvægt að hafa samband við kirkjuna, prestinn sem hefur umsjón með hópnum. Það er hægt að láta viðkomandi prest vita með tölvupósti. Ef fermingarbarn kemst ekki í tíma af öðrum ástæðum er mikilvægt að láta vita og mæta í einhvern annan tíma í vikunni í staðin. Í boði eru 10 mismunandi tímar í hverri viku þannig að yfirleitt er hægt að finna einhvern tíma sem passar.
Fermingar
Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra skrá sig sjálf á fermingardaga. Hver skóli fær úthlutað ákveðnum fermingardögum en einnig er velkomið að velja daga sem merktir eru öðrum skólum.