Það er komið að síðasta leik sumarsins í keppnisriðlinum hjá meistaraflokki kvenna í Fjölni en í dag mæta
okkar stúlkur Aftureldingu.
Það verður stórleikur á aðalleikvangi Fjölnis „Extravellinum“ og hefst leikurinn kl 18.00.
Fyrir leik verður boðið upp á grillaðar pylsur/pulsur og gos/svala eins mikið og hver og einn getur í sig látið.
Nú viljum við sjá metmætingu á völlinn og langar okkur til að sjá alla iðkendur og foreldra koma í grill og styðja stelpurnar okkar í síðasta leik sumarsins.
Þetta verður auðvitað stórleikur og mikil skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Allir að mæta á völlinn í dag og hvetja stúllkurnar okkar áfram.
Áfram Fjölnir
Sjá hérna myndir af leiknum…….