Fjölnir vann sinn ellefta sigur í röð í 1. deild karla í handknattleik um helgina. Fjölnir sótti Míluna heim á Selfoss og hafði að lokum yfirburðasigur, 14-29, eftir að staðan í hálfleik var 5-16.
Breki Dagsson var markahæstur í liði Fjölnis með átta mörk og Björgvin Páll Rúnarsson skoraði sex mörk.
Fjölnir vermir toppsætið með fullt hús stiga, 22 stig, en í öðru sæti koma HK og KR með 15 stig.
Næsti leikur Fjölnis verður verður gegn U Stjörnunni 9. desember í Garðabæ.