Á fundi leikskólastjóra borgarinnar fyrir helgina var Elín Ásgrímsdóttir fráfarandi leikskólastjóri Fífuborgar kvödd eftir 23 ára starf.
Elín hefur unnið hjá Reykjavíkurborg frá árinu 1972 og átt afar farsælan feril sem leikskólastjóri í Fífuborg í tæp 23 ár.
Leikskólastjórar kvöddu hana á fundi sínum og þökkuðu henni störf í þágu reykvískra barna. Á meðal þeirra voru þrjár samstarfskonur sem starfað hafa með henni sem aðstoðarleikskólastjórar í Fífuborg; Ásgerður Guðnadóttir, Brynja Benediktsdóttir og Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir.
Elínu fylgja þakkir fyrir vel unnin störf og óskir um farsæld um ókomna tíð.