Elín Ásgrímsdóttir leikskólastjóri lét nýverið af störfum sem leikskólastjóri á Fífuborg í Grafarvogi þar sem hún hefur stýrt fagstarfinu frá upphafi. Elín kvaddi leikskólann sinn um mánaðamótin, en hún hefur starfað sem leikskólastjóri í Fífuborg frá því að leikskólinn var opnaður í janúar 1993.
Börn og starfsfólk hittist í vinastund í sal og börnin sungu fyrir Elínu. Að því loknu voru henni færðar gjafir frá starfsfólki, börnum og foreldrum.
Elínu var þakkað hjartanlega fyrir samfylgdina öll þessi ár og fyrir að vera í fararbroddi að gera Fífuborg að þeim leikskóla sem hann er í dag. Henni fylgja óskir um gæfu og gengi í framtíðinni.
Sæunn Elfa Pedersen er nýr leikskólastjóri á Fífuborg.