Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa Dr. Grétar Halldór Gunnarsson í embætti prests í Grafarvogsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Frestur til að sækja um embættið rann út 8. ágúst sl. Kjörnefnd prestakallsins komst að þessari niðurstöðu en kosið var á milli fimm umsækjenda.
Áður hafði matsnefnd metið þessa fimm umsækjendur hæfasta til þess að gegna embættinu.
Á vef Grafarvogskirkju segir að Grétar Halldór hafi lokið embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 2008. Hann útskrifaðist með meistarapróf í guðfræði frá Princeton Seminary árið 2009 og lauk doktorsprófi í guðfræði frá Edinborgarháskóla árið 2015. Grétar er nú starfsmaður Kjalarnesprófastsdæmis og sinnir sömuleiðis stundakennslu við guðfræðideild Háskóla Íslands.
Grétar er jafnframt formaður Kyrrðarbænasamtakanna og á sæti í stjórn Biblíufélagsins. Grétar þýddi nýverið bókina Það sem við tölum um þegar við tölum um Guð, sem kom út hjá Skálholtskútgáfunni í ágúst.
Grétar Halldór verður vígður til Grafarvogssafnaðar á næstu vikum og mun hefja störf svo fljótt sem auðið er.
Grétar Halldór verður vígður til Grafarvogsprestakalls á næstu vikum.