Borgarstjórinn í Reykjavík óskar nú í fjórða sinn eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins. Sendið ábendingar á netfangið hugmynd@reykjavik.is
Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Slíkur borgari gæti t.d. verið einhver sem heldur borginni hreinni með því að tína upp rusl á víðavangi, eða einhver, sem hefur með ólaunuðu framlagi sínu, haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt eða gert Reykjavíkurborg gott á undanförnum árum með einhverjum öðrum hætti.
„Í Reykjavík eru fjölmargir fyrirmyndarborgarar sem hugsa fyrst og fremst um hag borgarinnar og borgarbúa, vinna óeigingjarnt starf í þágu samborgara sinna, láta gott af sér leiða með framkomu sinni eða halda borginni snyrtilegri og fallegri. Ég hvet Reykvíkinga til að benda á þá samborgara sína sem væru vel að þessum heiðri komnir. Valið hefur tekist afar vel í þrjú síðustu árin. Þeir sem hafa hlotið þennan titil eru sannkallað fyrirmyndarfólk, “ segir Jón Gnarr borgarstjóri.
Reykvíkingur ársins hlýtur vegleg verðlaun frá Reykjavíkurborg, m.a. boð frá borgarstjóra um að opna Elliðaárnar með honum. Auk þess fær hann árskort í sundlaugar ÍTR, árskort í Fjölskyldu og húsdýragarðinn, Menningarkortið til eins árs og leikhúsmiða í Borgarleikhúsið.
Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi um það hvers vegna viðkomandi einstaklingur á heiðurinn skilinn á netfangið hugmynd@reykjavik.is eða bréflega til skrifstofu borgarstjóra merkt Reykvíkingur ársins fyrir 19.maí 2014.
Þriggja manna dómnefnd velur Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.
Fyrri tilnefningar
Reykvíkingur ársins 2011 var Gunnlaugur Sigurðsson
Reykvíkingur ársins 2012 var Theodóra Guðrún Rafnsdóttir
Reykvíkingur ársins 2013 var Ólafur Ólafsson