Birnir Snær Ingason og Hans Viktor Guðmundsson verða báðir áfram í herbúðum Fjölnis á næsta keppnistímabili. Báðir skrifuðu þeir félagar þess efnis undir samninga í Egilshöllinni um helgina. Báðir eru þeir tvítugir að aldri og gerðu góða hluti fyrir Fjölni á síðasta tímabili.
Birnir Snær skoraði þrjú mörk fyrir Fjölni á liðnu sumri í Pepsídeildinni og Hans Viktor tvö.