Síðasti leikurinn í 8-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu verður háður í kvöld þegar KA og Fjölnir leiða saman hesta sína á Akureyri og hefst viðureign liðanna klukkan 18. KR, Valur og ÍBV hafa tryggt sér sæti í úrslitum bikarsins en dregið verður í undanúrslit um hádegið á morgun í höfuðstöðvum KSÍ.
Fjölnismenn hafa oft verið að leika vel í deildinni í sumar en hafa reyndar tapað síðustu tveimur leikjum sínum og sitja í fimmta sætinu. KA er í fjórða sætinu í 1. deild og eru alltaf erfiðir heim að sækja. Víst er að hvorugt liðið gefur sinn hlut eftir í leiknum í kvöld enda sæti í undanúrslit keppninnar í boði.