Nú virðist sem að Vínbúð verði á nýjan leik opnuð í Grafarvogi. Vínbúð var um nokkurra ára skeið í Spönginni en ÁTVR ákvað að loka henni fyrir rúmum fjórum árum síðan því húsnæði þar þótti ekki henta lengur.
Í dagblöðum nú um helgina óskar ÁTVR eftir húsnæði til að taka á leigu í Grafarvogi.