Það verða Fylkismenn sem mæta í Voginn fagra á morgun, miðvikudag kl. 20:00 og berjast við okkur Fjölnismenn í 10. umferð Pepsídeildar karla í knattspyrnu.
Fjölnir tapaði í síðasta leik gegn Stjörnunni með marki á síðustu sekúndunum í hörku leik þar sem það hefði ekki verið ósanngjarnt ef strákarnir hefðu fengið einhver stig úr þeim leik. Fjölnisstrákarnir ætla að selja sig dýrt á morgun til að byrja stigasöfnunina á nýjan leik.
Allt Fjölnisfólk og Grafarvogsbúar er hvatt til að mæta á völlinn og styðja strákana til sigurs.
Veitingasala í sjoppunni hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna.