Strákarnir í 2 flokki karla í Fjölni urðu um helgina Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu 2016 eftir sigur á Þrótti 3 – 2 í leik þar sem Fjölnir var sterkari aðilinn en tókst illa að klára fjölda færa í leiknum.
Mörkin fyrir Fjölni skoruðu Ægir 2 og Ingibergur Kort 1.
Liðinu er hér með óskað til hamingju með þennan árangur, vonandi er þetta byrjun á skemmtilegu sumri hjá strákunum.