Í dag var dregið í 8 liða úrslitum Borgunbikars karla en drátturinn fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Fjölnir drógst á móti KA og verður leikurinn háður á Akureyri. Fjölnismenn eru á mikilli siglingu um þessar mundir og verður spennandi að sjá hvernig framhaldið verður. KA hafa staðið sig vel í 1. deildinni og stefnir í hörkuleik þessara liða.
Það eru spennandi viðureignir framundan en bikarmeistarar KR taka á móti FH í Vesturbænum. Leikdagar eru sunnudagurinn 6. og mánudagurinn 7. júlí.
Leikirnir eru:
KR – FH
KA – Fjölnir
Víkingur R. – Valur
ÍBV ‘- Fylkir