• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Nýtt flokkunarkerfi og söfnun á matarleifum
Jól og áramót í Grafarvogssöfnuði
Uppskeruhátíð Fjölni 2022
Vilt þú styrkja Fjölnir
Fjörugir 60 manna kórtónleikar eru einsdæmi
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Íþróttaakademía Fjölnis stofnuð

10 des 2013
Baldvin
0
Aðsent efni, Barnastarf, Dansskóli Reykjavíkur, Fermingar í Grafarvogi, Fjölnir fimleikar, Fjölnir handbolti, Fjölnir knattspyrna, Grunnskólar Grafarvogs, Íþróttir, Menntamál, Skautafélagið Björninn
Fjölnir Íþrótta akademía

Fjölnir Íþrótta akademía

Nú í haust var hrundið af stað verkefni sem kallast Íþróttaakademía Fjölnis [ÍAF] og er það tækifæri ætlað unglingum sem æfa boltaíþrótt í Fjölni og í 9. og 10. bekk. Verkefnið snýst um að bjóða upp á skipulagða tækniþjálfun í handbolta, fótbolta og körfubolta ásamt hagnýtri fræðslu í þeim þáttum sem skipta máli, s.s. íþróttasálfræði og næringarfræði. Aðalmarkmið ÍAF er að bjóða upp á þjálfun og fræðslu sem styður við það sem þegar er gert í flokkum félagsins, annað og fleira en gert er nú þegar í deildunum. Þetta verkefni er hugsað fyrir þá íþróttamenn sem vilja ná langt í sinni íþrótt og eru tilbúin að leggja mikið á sig, til að svo megi verða.

ÍAF byggir á samstarfi unglingadeilda grunnskóla Grafarvogs og Umf. Fjölnis og felst tækifærið fyrir unglingana að fá að velja ÍAF sem valgrein í náminu sínu í stað hefðbundinna námsgreina. Þess má geta að verkefnið er unnið að fyrirmynd sem hefur gengið afar vel hjá Haukum í Hafnarfirði, Afreksskóla Hauka, undir stjórn Kristjáns Ómars Kristjánssonar.

Skráning í verkefnið var mjög góð og um 36 nemendur eru nú skráðir, og koma þeir úr boltagreinunum þremur af báðum kynjum. Haldinn var kynningarfundur með foreldrum og iðkendum í byrjun annar og verkefnið kynnt.  (sjá mynd)

Ein megin forsenda þess að verkefnið gengur eins vel og raunin er, eru þeir góðu þjálfarar sem fengust til að starfa með okkur. Til að stýra bóklegu tímunum þar sem allar greinarnar koma saman fengum við Elmar Hjaltalín yfirþjálfara fótboltans og Arnór Ásgeirsson íþróttafræðing til liðs við okkur. Um tækniþjálfunina sem er einnig einu sinni í viku sjá þeir Pétur Sigurðsson (körfubolti), Elmar Hjaltalín (fótbolti) og Guðmundur Rúnar Guðmundsson (handbolti).

Haustönnin sem er senn á enda runnin var vonandi aðeins fyrsta af mörgum og mun verkefnið vera í stöðugri þróun næstu misserin. Vonast er til að í framtíðinni verði hægt að bjóða upp á þetta tækifæri fyrir fleiri greinar úr Fjölni. Forsvarsmenn eru þess fullvissir að æfingarnar og fræðslan mun hjálpa íþróttamönnum Fjölnis að ná fram sínum besta árangri þegar fram í sækir.

Email, RSS Follow

Share this:

  • Print
  • Email
  • Facebook
  • LinkedIn

Sendu skilaboð Hætta við svar

*
*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Recent

Popular

Comments

Nýtt flokkunarkerfi og söfnun á matarleifum

21 jan 2023
No Responses.

Jól og áramót í Grafarvogssöfnuði

22 des 2022
No Responses.

Uppskeruhátíð Fjölni 2022

16 des 2022
No Responses.

Félagsmiðstöð Borgir í Spöng

21 maí 2014
4 Comments

Tveir Rimaskóladrengir á Ólympíuleika ungmenna

28 okt 2013
2 Comments

OPIÐ HÚS á Korpúlfsstöðum laugardaginn 1.mars milli kl. 13-17

28 feb 2014
2 Comments

Hæhæ Best að hafa samband við Miðgarð...

28 nóv 2022

Góðan daginn Mig langara að spurja:) Er...

28 nóv 2022

Sæl, Hafðu samband við Birnu í síma...

13 júl 2020
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2022
www.grafarvogsbuar.is